Bað hennar í baði

Ben Affleck og Jennifer Lopez eru trúlofuð.
Ben Affleck og Jennifer Lopez eru trúlofuð. AFP/ VALERIE MACON

Ben Affelck og Jennifer Lopez trúlofuðu sig í annað sinn á dögunum. Leik- og söngkonan greinir frá því að bónorð leikarans hafi verið mjög rómantískt. Hún segir þau núna fá annað tækifæri en tæpir tveir áratugir eru síðan þau voru trúlofuð síðast. 

Stærsti draumur Lopez varð að veruleika þegar Affleck bað hennar. „Á laugardagskvöld á uppáhaldsstaðnum mínum í heiminum (í froðubaði), fór fallega ástin mín niður á annað hnéð og bað mín,“ skrifaði Lopez í fréttabréfi til aðdáenda sinna að því fram kemur á vef People

„Þetta kom mér algjörlega á óvart og ég horfði bara í augun hans brosandi og grátandi á sama tíma og reyndi að átta mig á því að það sem gerðist fyrir 20 árum var að endurtaka sig. Ég var bókstaflega orðlaus. Hann sagði: „Er þetta já?“ og ég sagði: „JÁ, auðvitað er þetta JÁ.“

Lopez lýsir því hvernig hún grét og tárin runnu niður andlit hennar þegar Affleck bað hennar. „Þetta var ekki fínt eða neitt þannig en þetta var það rómantískasta sem ég hefði getað ímyndað mér, bara rólegt laugardagskvöld heima.“

Jennifer Lopez og Ben Affleck árið 2003.
Jennifer Lopez og Ben Affleck árið 2003. AP/KIM D. JOHNSON
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler