Sonja Sif Þórólfsdóttir skrifar frá Tórínó
Eurovisionkeppendur mættu í sínu fínasta pússi á túrkísbláan dregil þegar opnunarhátíð Eurovision fór fram á sunnudaginn. Mikil hátíðarstemning var í loftinu og ræddi Sonja Sif Þórólfsdóttir blaðamaður mbl.is við frændur okkar Dani, Svía og Norðmenn.
Dönsku stelpurnar mættu í fötunum sem þær keppa í á sviðinu. Fötin sem eru í anda hippatímabilisins voru sérsaumaðar á þær. Norðmenn vonast til þess að komast áfram eins og aðrir og hafa vakið athygli fyrir búninga sína. Hluti hópsins vildi lítið tjá sig við blaðamann mbl.is en virtist því mun hungraðri og endaði einn á því að ráðast á hljóðnemann með litlum árangri. Sænski keppandinn var einnig hress.