Leikkonan Emma Roberts heldur áfram með lífið eftir sambandsslitin við barnsföður sinn, leikaranum Garrett Hedlund. Parið á saman hinn eins árs gamla Rhodes en hætti saman í kringum síðustu áramót.
„Emma og Garrett eiga ekki í neinu rómantísku sambandi og Emma hefur verið að fara á stefnumót,“ sagði heimildarmaður ET. „Emma elskar að vera mamma og er stolt af því.“
Leikaraparið byrjað saman árið 2019 og eignaðist saman barn í lok árs 2020. Ári seinna hættu þau saman. Er leikkonan sögð hafa gefið barnsföður sínum marga sénsa áður en hún gafst endanlega upp á honum. Þegar fréttist af sambandsslitunum kom fram að Hedlund hefði glímt við fíknivanda lengi. Hedlund er ánægður með barnsmóður sína sem hann segir vera frábæra móður.