Spjallþáttastjórnandinn Sharon Osbourne segir að dóttir hennar Aimee Osbourne hafi naumlega sloppið við eldsvoða sem varð í hljóðveri í Hollywood í Bandaríkjunum á fimmtudagskvöld. Einn fórst í eldinum og tvö særðust.
Sharon sagði frá tengingu dóttur sinnar við eldsvoðann á Instagram. „Dóttir mín Amee var að vinna í hljóðveri í þessari byggingu með framleiðanda. Þau eru mjög heppin að hafa komist út á lífi,“ skrifaði hún á Instagram. Hún sendi hlýjar kveðjur til aðstandanda hins látna.
Fyrrverandi raunveruleikastjarnan nýtti tækifærið til að berjast fyrir strangari reglugerðum varðandi brunavarnir í byggingum í Kaliforníuríki.
Aimee sjálf hefur ekki tjáð sig um eldsvoðann.