Skipuleggjendur RIFF-kvikmyndahátíðarinnar verða með styrktarsýningar á úkraínsku kvikmyndinni Stop-Zemlia næsta mánuðinn.
„Með frjálsum framlögum viljum við gefa fólki tækifæri á styrkja góðgerðafélagið Tabletochki, sem aðstoðar krabbameinssjúk börn í Úkraínu,sem er sérstaklega mikilvægt á þessum erfiðu tímum,“ segir í tilkynningu frá RIFF.
Myndin verður aðgengileg hér á landi á heimasíðu hátíðarinnar í heilan mánuð og þar verður einnig tekið við framlögum í þágu málefnisins. Síðasta sýning verður 17. júní.
Spurt og svarað verður með leikstjóranum, Katerynu Gornostai, 8. júní klukkan 18.00.
Um fyrstu mynd leikstjórans er að ræða. Hún fjallar um unglingsstelpuna Möshu sem er feimin og utangarðs nema þegar hún er með vinkonum sínum, Yönu og Seniu. Hún reynir að klára útskriftarár sitt í námi á sama tíma og hún verður ástfangin.