Dómurinn féll Depp í vil

Amber Heard og Johnny Depp.
Amber Heard og Johnny Depp. AFP

Amber Heard hefur verið sakfelld í öllum kæruliðum í meiðyrðamáli fyrrverandi eignmanns hennar, leikarans Johnny Depp, gegn henni.

Kviðdómurinn ákvarðaði tíu milljónir dala í miskabætur til Depp og fimm milljónir í refsibætur vegna ærumeiðinga Heard. Heard fær að sama skapi tvær milljónir í miskabætur vegna ærumeiðinga Depp en hún vann í einum lið gegn honum.

Depp höfðaði mál gegn Heard vegna grein­ar sem hún skrifaði í Washingt­on Post árið 2018. Í henni steig hún fram sem þolandi heim­il­isof­beld­is en nafn­greindi Depp ekki. Hann fór fram á 50 millj­ón­ir dala í skaðabæt­ur og sagði grein­ina hafa valdið því að hann missti fjölda hlut­verka. Bæði segja þau málið hafa valdið skaða á kvik­mynda­ferli þeirra í Hollywood.

Heard höfðaði mál gegn hon­um sömu­leiðis og krafðist 100 millj­óna banda­ríkja­dala frá hon­um vegna þess of­beld­is sem hún sagði hann hafa beitt sig.

Í yfirlýsingu, eftir að niðurstöður kviðdómsins voru kunnar, sagði Depp að kviðdómurinn hefði gefið honum líf sitt aftur. 

Sögðust bæði hafa orðið fyrir ofbeldi

Depp neit­aði ásök­un­um Heard og sag­ðist aldrei hafa lagt hend­ur á hana, né aðra konu á sinni lífs­leið. Hann sagði Heard hafa beitt sig of­beldi. Hún sagði Depp hafa ít­rekað beitt hana of­beldi. Hún hafi aldrei veitt fyrsta höggið en viður­kenn­di að hafa slegið til baka und­ir lok hjóna­bands­ins. 

„Ég hef engin orð yfir vonbrigðin sem ég finn í dag. Ég er sár yfir því að fjall sönnunargagna hafi ekki verið nóg á móti óhóflegum völdum og áhrifum fyrrverandi eiginmanns míns,” sagði Heard meðal annars í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér stuttu eftir að dómurinn féll.

Heard á leið í dómsal fyrr í dag. Depp var …
Heard á leið í dómsal fyrr í dag. Depp var ekki viðstaddur réttarhöldin en hann hef­ur verið á Englandi und­an­farna daga og meðal ann­ars spilað á þrenn­um tón­leik­um með Jeff Beck. AFP

Réttarhöldin tóku sex vikur

Bíða þurfti stutta stund eftir niðurstöðum kviðdómsins þar sem hann hafði gleymt að ákvarða bætur. Ekki var vitað á þeim tíma hvort bæturnar væru handa Depp eða Heard.

Í úr­sk­urði kviðdómsins, sem tel­ur átta blaðsíður, þurftu kviðdóm­ar­ar að svara 24 spurn­ing­um í tengsl­um við meiðyrðamál Depps og 18 spurn­ing­um í tengsl­um við mál henn­ar. Leit­ast var eft­ir að kom­ast að niður­stöðu hvort full­yrðing­ar Heard í grein­inni hafi verið sett­ar fram af brota­vilja, með þá vitn­eskju að þær væru ekki sann­ar, eða hvort full­yrðing­arn­ar hafi verið sett­ar fram með skeyt­ing­ar­leysi fyr­ir því hvort þær væru falsk­ar eða ekki.

Síðasti dagur réttarhaldanna, sem stóðu yfir í rúmar sex vikur, var síðasta föstudag.

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant