Tók Britney fram yfir forsetann

Paris Hilton
Paris Hilton AFP

Hótelerfinginn og tískumógúlinn, Paris Hilton, valdi að fara í brúðkaup hjá Britney Spears frekar en að spila fyrir forseta Bandaríkjanna. Hilton hefur starfað sem plötusnúður samhliða öðrum störfum sem hún hefur sinnt í gegnum tíðina. Hilton greindi frá þessu í hlaðvarpsþætti sínum This is Paris sem kom út á dögunum.

„Ég var beðin um að spila fyrir forsetann og alla hina forseta heimsins yfir kvöldmatnum á þessum viðburði. Þetta var ekki erfitt val og ég valdi frekar að fara í brúðkaup vinkonu minnar,“ segir Paris Hilton.

Þegar Hilton var beðin um að segja frá einhverju sem tengdist brúðkaupi Spears lýsti hún brúðkaupsdegi vinkonu sinnar sem algjöru ævintýri.

„Þetta var prinsessudagur brúðarinnar og það er ekki mitt að segja frá hvað gerðist. Það er hennar,“ sagði Hilton sem sá ekki eftir því að hafa tekið vinkonu sína fram yfir forseta Bandaríkjanna.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant