Láta 27 ára aldursbil ekki stoppa sig

Skjáskot/Instagram

Grínistinn Dane Cook fór á skeljarnar hinn 13. júlí síðastliðinn og bað kærustu sinnar til fimm ára, Kelsi Taylor. Parið kynntist þegar Taylor var 18 ára gömul, en þá var Cook 45 ára og því 27 ár sem skilja þau að.

„Hún sagði já,“ skrifaði Cook undir myndskeið sem hann birti á Instagram reikningi sínum. Í samtali við People sagðist Cook hafa verið algjörlega tilbúinn að biðja hennar og ansi rólegur yfir því. „Kvöldið sem ég bað hennar var ótrúlega fallegt, veðrið var fullkomið, stórkostlegt sólsetur og ég var einfaldlega mjög ánægður,“ sagði hann. 

View this post on Instagram

A post shared by Dane Cook (@danecook)

Taylor, sem er þjálfari og söngkona, sagði stundina hafa verið ógleymanlega. „Ég hefði ekki getað beðið um fullkomnara augnablik. Það sem fór í gegnum huga minn var: „Bíddu, er þetta raunverulega að gerast? Er hann að biðja mín?,“ sagði hún. 

View this post on Instagram

A post shared by Dane Cook (@danecook)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant