Katy Perry syngur fyrir boðsgesti í Hörpu

Söngkonan Katy Perry er á leið til landsins í ágúst.
Söngkonan Katy Perry er á leið til landsins í ágúst.

Bandaríska söngkonan Katy Perry er á leið til landsins í ágúst. Perry kemur til landsins í tengslum við jómfrúarferð nýjasta skemmtiferðaskips Norwegian Cruise Line, Norwegian Prima, en skipinu verður gefið nafn við hátíðlega athöfn á Skarfabakka í Sundahöfn í Reykjavík hinn 27. ágúst næstkomandi. 

Perry verður guðmóðir skipsins og mun gefa því nafn. Sama dag mun hún svo taka lagið við athöfn í Hörpu. 

Norwegian Prima er hið fyrsta af sex skipum sem Norwegian Cruise Line lætur smíða á Ítalíu og verða afhent á árabilinu 2022-2027. Útgerðin tók við skipinu sl. mánudag í Feneyjum. Er það í hópi stærstu skipa sem hingað eru væntanleg í sumar, 142.500 brúttótonn og vistarverur eru á 16 hæðum. Það tekur 3.300 farþega og í áhöfn eru 1.500 manns. Því geta tæplega 5.000 manns verið um borð í skipinu í einu.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant