Hættur með ungu kærustunni

Leikarinn Leonardo DiCaprio er á lausu.
Leikarinn Leonardo DiCaprio er á lausu. AFP

Hjartaknúsarinn Leonardo DiCaprio og fyrirsætan Camila Morrone eru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Þetta herma heimildarmenn People en forsvarsmenn parsins neituðu að tjá sig um málið. 

Parið sást fyrst stinga saman nefjum í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum í janúar 2018. Þau komu svo fram opinberlega sem par þegar þau sátu saman á fremsta bekk á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2020.

Þau voru síðust mynduð saman í júlí. Morrone var með móður sinni í fríi í St.Tropez í Frakklandi í ágúst og á sama tíma sást DiCaprio í Los Angeles í Bandaríkjunum.

Samband þeirra var umtalað þegar það hófst en mikill aldursmunur er á þeim en DiCaprio er 22 árum eldri en hún. 

Morrone er nýorðin 25 ára en DiCaprio hefur aldrei verið með konu sem er eldri en 25 ára opinberlega. Hafa þær allar verið á aldrinum 18 til 25 ára, sama þó leikarinn sé nú orðinn 47 ára gamall.

Leonardo DiCaprio og Camila Morrone eru hætt saman.
Leonardo DiCaprio og Camila Morrone eru hætt saman. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson