Farin frá Buckinghamhöll í síðasta sinn

Ofan á kistunni hvílir kóróna drottningarinnar.
Ofan á kistunni hvílir kóróna drottningarinnar. AFP

Kista Elísabetar II Bretadrottningar er komin til Westminster Hall í Lundúnum á Bretlandi. Kistan var flutt þangað frá Buckinghamhöll eftir hádegi í dag og hefur drottningin því farið frá höllinni í síðasta sinn. 

Kistan var flutt á hestavagni tilo Westminsterhall klukkan 13:33 að íslenskum tíma. Klukkum Westminsterhallar var hringt og skotum hleypt af með einnar mínútu millibili frá Hyde Park til Westminster. Herlúðrasveitin spilaði útfararlög Beethovens, Mendelssohn og Chopin. 

Karl III Bretakonungur og synir hans Vilhjálmur og Harry Bretaprins gengu á eftir kistunni þessa leið sem ein míla, eða 1,6 kílómetri. Með þeim voru einnig systkini konungsins, Anna prinsessa, Andrés Bretaprins og Játvarður Bretaprins.

Flugumferð var takmörkuð yfir miðborg Lundúna á meðan kistan var flutt til að tryggja þögn.

Karl var fyrstur á eftir kistunni.
Karl var fyrstur á eftir kistunni. AFP
Karl, Vilhjálmur, Harry, og Andrés fylgja kistunni eftir.
Karl, Vilhjálmur, Harry, og Andrés fylgja kistunni eftir. AFP
Anna, Harry og Andrés.
Anna, Harry og Andrés. AFP
Andrés og Harry klæddust ekki einkennisbúningum hersins, en það gerðu …
Andrés og Harry klæddust ekki einkennisbúningum hersins, en það gerðu Karl, Anna og Játvarður. AFP
Bræðurnir Vilhjálmur og Harry.
Bræðurnir Vilhjálmur og Harry. AFP
Kamilla drottning og Katrín prinsessa fylgdu í bíl.
Kamilla drottning og Katrín prinsessa fylgdu í bíl. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant