Minnti hann á útför Díönu

Harry og Vilhjálmur í gær.
Harry og Vilhjálmur í gær. AFP

Vilhjálmur Bretaprins sagði að gangan á eftir kistu ömmu hans, Elísabetar II. Bretadrottningar, frá Buckinghamhöll til Westminster í gær hafi minnt hann á þegar hann gekk á eftir kistu móður sinnar, Díönu prinsessu af Wales, árið 1997. 

Prinsinn sagði þetta við syrgjendur við Sandringham í dag, en hann og eiginkona hans, Katrín prinsessa af Wales, skoðuðu blómin við kastalann í dag og heilsuðu upp á syrgjendur þar. 

„Gangan í gær var mikil áskorun. Það minnti mig á margt,“ sagði Vilhjálmur við nokkra fyrir utan Sandringham. „Þetta eru þessi augnablik, sem maður hugsar með sjálfum sér að maður sé undirbúinn fyrir þetta, en raunin er svo önnur,“ sagði Vilhjálmur.

Vilhjálmur og Harry gengu hlið við hlið á eftir kistunni …
Vilhjálmur og Harry gengu hlið við hlið á eftir kistunni í gær. AFP

„Hann sagði okkur að gærdagurinn hafi verið sérstaklega erfiður og að ganga á eftir kistunni hafi minnt hann á útför móður hans,“ sagði Jane Wells, sem ræddi við fjölmiðla við Sandringham í dag.

Bræðurnir Vilhjálmur og Harry Bretaprins gengu á eftir föður sínum, Karli III. Bretakonungi, sem var fyrstur í röðinni á eftir kistunni í gær. Viðstaddir sem fréttastofa AFP ræddu við í gær sögðu einnig það sama, að sjá þá bræður ganga á eftir kistunni hafi minnt á útför Díönu prinsessu. Þar hreyfðu bræðurnir, þá 12 og 15 ára, svo sannarlega við hjörtum fólks um allan heim. 

Bræðurnir við útför móður sinnar árið 1997, ásamt afa sínum …
Bræðurnir við útför móður sinnar árið 1997, ásamt afa sínum Filippusi hertoga af Edinborg, móðurbróður sínum Earl Spencer, og föður sínum Karli Bretakonungi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant