Dýrið sigurvegari kvöldsins

Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim, sem voru á meðal framleiðenda …
Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim, sem voru á meðal framleiðenda kvikmyndarinnar Dýrið, taka við verðlaununum fyrir bestu kvikmynd ársins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hlaut flestar Eddur, eða samtals tólf, þegar verðlaun Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar (ÍKSA) voru afhent fyrr í kvöld. Dýrið var meðal annars valin kvikmynd ársins og Valdimar Jóhannsson var verðlaunaður fyrir bæði leikstjórn og handrit, sem hann skrifaði í samstarfi við Sjón. Hilmir Snær Guðnason og Björn Hlynur Haraldsson voru verðlaunaðir fyrir leik sinn í kvikmyndinni. 

Dýrið var tilnefnd til 13 verðlauna og hlaut þau öll nema fyrir gervi, en þar vann Ragna Fossberg fyrir gervi sín í sjónvarpsþáttaröðinni Kötlu, sem voru einu verðlaunin sem þáttaröðin hlaut.

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir var kosin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir …
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir var kosin leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir Systrabönd. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hilmir Snær Guðnason er leikari ársins í aðalhlutverki.
Hilmir Snær Guðnason er leikari ársins í aðalhlutverki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Næstflest verðlaun hlaut sjónvarpsþáttaröðin Systrabönd í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir var verðlaunuð fyrir bestan leik í aðalhlutverki og María Heba Þorkelsdóttir fyrir bestan leik í aukahlutverki auk þess sem þáttaröðin var valin leikna sjónvarpsefni ársins.

Silja Hauksdóttir tekur við verðlaununum fyrir sjónvarpsefni ársins.
Silja Hauksdóttir tekur við verðlaununum fyrir sjónvarpsefni ársins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Snjólaug Lúðvíksdóttir og Bergur Ebbi Benediktsson voru kynnar kvöldsins.
Snjólaug Lúðvíksdóttir og Bergur Ebbi Benediktsson voru kynnar kvöldsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heildarlistann má sjá hér fyrir neðan en alls voru veitt 28 verðlaun að heiðursverðlaununum meðtöldum, en þau hlaut Þráinn Bertelsson. 

Kvikmynd ársins

Dýrið

Leikstjóri ársins

Valdimar Jóhannsson fyrir Dýrið

Handrit ársins

Valdimar Jóhannsson og Sjón fyrir Dýrið

Leikari ársins i í aðalhlutverki

Hilmir Snær Guðnason fyrir Dýrið

Leikari ársins í aukahlutverki

Björn Hlynur Haraldsson fyrir Dýrið

Leikkona ársins í aðalhlutverki

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd

Leikkona ársins í aukahlutverki

María Heba Þorkelsdóttir fyrir Systrabönd

Leikið sjónvarpsefni ársins

Systrabönd

Heimildarmynd ársins

Hækkum rána

Stuttmynd ársins

Heartless

Sjónvarpsmaður ársins

Helgi Seljan

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins

Kveikur

Menningarþáttur ársins

Tónlistarmennirnir okkar

Skemmtiþáttur ársins

Vikan með Gísla Marteini

Barna- og unglingaefni ársins

Birta

Mannlífsþáttur ársins

Missir

Íþróttaefni ársins

Víkingar: Fullkominn endir

Gervi ársins

Ragna Fossberg fyrir Kötlu

Leikmynd ársins

Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Dýrið

Búningar ársins

Margrét Einarsdóttir fyrir Dýrið

Brellur ársins

Frederik Nord og Peter Hjorth fyrir Dýrið

Klipping ársins

Agnieszka Glinska fyrir Dýrið

Kvikmyndataka ársins

Eli Arenson fyrir Dýrið

Hljóð ársins

Ingvar Lundberg og Björn Viktorsson fyrir Dýrið

Tónlist ársins

Þórarinn Guðnason fyrir Dýrið

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins

Salóme Þorkelsdóttir fyrir Tónaflóð á Menningarnótt

Sjónvarpsefni ársins (almenningskosning á RÚV)

Benjamín búálfur

Heiðursverðlaun

Þráinn Bertelsson

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson