„Ég biðst afsökunar á öllu sem hefur sært þig“

AFP

Lynne Spears, móðir söngkonunnar Britney Spears, baðst opinberlega afsökunar á öllum sársaukanum sem dóttir hennar mátti þola í þau 13 ár sem hún var svipt sjálfræði. Hún biður dóttur sína að hafa samband við sig, en Britney virðist hafa lokað alfarið á móður sína.

Samkvæmt heimildarmanni Page Six hefur Lynne endurtekið reynt að ná sambandi við dóttur sína í gegnum síma án árangurs og því hefur hún nú gripið til samfélagsmiðla í þeirri von um að ná til dóttur sinnar. 

Leitar til samfélagsmiðla

Britney birti færslu á dögunum þar sem hún sagði fjölskyldumeðlimi sína trúa því að þeir hafi alls ekki gert neitt rangt tengt sjálfræði hennar. 

„Ég á ekki fjölskyldu sem kann að meta mig eða ber virðingu fyrir mér,“ skrifaði Birtney. 

Lynne skrifaði ummæli við færsluna og biður dóttur sína afsökunar á sársaukanum sem sjálfræðissviptingin hafi valdið henni. „Mér þykir það svo leitt. Ég hef verið miður mín í mörg ár. Ég elska þig svo mikið og sakna þín,“ skrifaði Lynne.

Móðir Britney skrifaði ummæli við færslu hennar á Instagram.
Móðir Britney skrifaði ummæli við færslu hennar á Instagram. Skjáskot/Instagram

Aðgerðarleysið sárast

Þó móðir Britney hafi ekki gegnt formlegu hlutverki í sjálfræðissviptingu hennar segir heimildarmaðurinn að Britney sé þó sárari út í móður sína vegna aðgerðarleysisins þar sem þær hafi alla tíð verið nánar. 

Aftur á móti hafi samband Britney við föður sinn verið erfitt í mörg ár áður en hún var svipt sjálfræði. 

Heimildarmaðurinn bendir einnig á að þrátt fyrir falleg orð Lynne til dóttur sinnar sé hún enn að biðja um yfir 600 þúsund Bandaríkjadali í lögfræðikostnað frá dóttur sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson