Svartur á þríleik

Svartur á leik verður að þríleik.
Svartur á leik verður að þríleik.

Óskar Þór Axelsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Svartur á leik, hefur tilkynnt að gerðar verða tvær kvikmyndir í viðbót í kringum kvikmyndina. Fyrri myndin verður forsaga Svartur á leik og seinni myndin verður framhald á kvikmyndinni og gerist í nútímanum. 

Sama teymi mun koma að gerð kvikmyndanna, Óskar leikstýrir, rithöfundurinn Stefán Máni mun skrifa handrit ásamt Óskari. FramleiðslufyrirtækinFilmus ogZikZak sjá um framleiðslu og Sena sér um innlenda dreifingu ogScanbox um alþjóðlega dreifingu. Framleiðendur eru áfram Andri Sveinsson, Arnar Knútsson, Heiðar Guðjónsson og Þórir Snær Sigurjónsson.

Stefnt er að því að fyrri myndin komi út 2024 og seinni myndin ári síðar. 

Óskar Þór Axelsson er leikstjóri þríleiksins.
Óskar Þór Axelsson er leikstjóri þríleiksins.

Fyrri myndin hefst þegar fyrsti dómur fyrir eiturlyfjasölu féll árið 1975 og inn í níunda áratuginn, tímabil pönksins þegar harðari efni byrjuðu að flæða til landsins. Seinni myndin verður birtingarmynd undirheima dagsins í dag þar sem magn eiturlyfja í umferð hefur margfaldast frá þeim tíma sem Svartur á leik fjallar um og erlendar glæpaklíkur hafa rutt sér til rúms og glæpastarfssemi orðin skipulögð, aftökur og harðari glæpir.

Tíu ár eru síðan Svartur á leik var frumsýnd og í tilefni af því hefjast sýningar aftur í Smárabíói á morgun, 7. október.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson