Prinsessan hættir að sinna opinberum skyldum

Marta Lovísa Noregsprinsessa er hætt að sinna opinberum skyldum fyrir …
Marta Lovísa Noregsprinsessa er hætt að sinna opinberum skyldum fyrir norsku konungsfjölskylduna. AFP

Marta Lovísa Noregsprinsessa ætlar að hætta að sinna opinberum skyldum fyrir norsku konungshöllina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá höllinni í dag. 

Þar segir að prinsessan vilji aðgreina betur sitt persónulega líf frá konungsfjölskyldunni. Hún mun áfram halda prinsessutitlinum, en fær ekki að nota titilinn í vinnu sinni á samfélagsmiðlum.

Marta er eldri systir Hákonar krónprins en er þrátt fyrir það ekki ríkisarfi. Lög­un­um um erf­ingja krún­unn­ar í Nor­egi var ekki breytt fyrr en árið 1990 og var lög­un­um ekki breytt aft­ur­virkt. Hún er því fjórða í röðinni á eft­ir Há­koni og börn­un­um hans tveim­ur.

Marta Lovísa er í sambandi með seiðmanninum Durek Verrett og eru þau búsett í Bandaríkjunum. Í tilkynningunni frá norsku konungshöllinni kemur fram að þegar þau giftast muni hinn umdeildi Verrett ekki hljóta konungstitil þó hann verði hluti af konungsfjölskyldunni. Er það í samræmi við hefðir, en þar sem Marta er ekki krónprinsessa hlýtur maki hennar ekki konunglegan titil. 

Foreldrar prinsessunnar, Haraldur 5. Noregskonungur og Sonja Noregsdrottning, þakka henni fyrir vel unnin störf síðustu áratugina. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant