Vinsæll sjónvarpskynnir á skammt eftir ólifað

Sjónvarpsmaðurinn Jonnie Irwin á skammt eftir ólifað.
Sjónvarpsmaðurinn Jonnie Irwin á skammt eftir ólifað. Skjáskot/Instagram

Breski sjónvarpsmaðurinn Jonnie Irwin greindi frá því opinberlega að hann hefði greinst með krabbamein. Irwin er hvað þekktastur fyrir þættina A Place In The Sun á Channel 4 og Escape To The Country á BBC. 

Irwin sagði frá greiningunni í viðtali við Hello! Magazine og sagði að lungnakrabbamein sem hann greindist með hefði dreift sér í heila. 

„Ég veit ekki hversu mikið ég á eftir,“ sagði Irwin og sagðist vonast til þess að veikindi sín veittu öðrum innblástur til að nýta hvern dag. 

Irwin á þriggja ára son og tveggja ára tvíbura með eiginkonu sinni Jessicu. Hann hefur ekki tjáð sig um veikindin opinberlega áður. 

Fyrstu einkennin gerðu vart við sig árið 2020 þegar hann var á Ítalíu í tökum fyrir A Place In The Sun. Viku seinna var honum gefið hálft ár til að lifa. 

Bað eiginkonu sína afsökunar

„Ég þurfti að fara heim og segja eiginkonu minni, sem var að hugsa um börnin okkar, að hún væri ein í þessu eiginlega. Það var hræðilegt. Eina sem ég gat gert var að biðja hana afsökunar. Mér fannst ég bera ábyrgð á þessu,“ sagði Irwin.

Eftir greininguna hefur Irwin reynt að vinna eins mikið og hann getur. Hann sagði þó að sér hefði liðið óþægilega með að segja ekki frá veikindunum og gerði það því núna.

„Þetta mun ná í skottið á mér einn daginn, en ég er að gera allt sem ég get til að halda þessu í burtu, eins lengi og ég get. Ég skulda Jess og strákunum okkur það,“ sagði Irwin og sagðist vilja nýta tímann sem best með fjölskyldunni og skapa minningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson