Aðalkvennabósinn með fyrirsætu í takinu

Emily Ratajkowski og Pete Davidson eru sögð vera að stinga …
Emily Ratajkowski og Pete Davidson eru sögð vera að stinga saman nefjum. Samsett mynd

Fyrirsætan Emily Ratajkowski og grínistinn Pete Davidson eru sögð vera að stinga saman nefjum.

Síðustu mánuði hefur Ratajkowski verið að feta sín fyrstu skref í ástalífinu eftir ljótan skilnað við Sebastian Bear-McClard, en í september var hún sögð eyða miklum tíma með leikaranum Brad Pitt. Stuttu síðar sást hún með myndarlegum huldumanni í New York. 

Á stefnumóti í Brooklyn í New York

Nú virðist fyrirsætan vera með augastað á nýjum manni, en Ratajkowski og Davidson sáust ganga hönd í hönd í Brooklyn síðastliðið laugardagskvöld. 

„Pete og Emily hafa verið að tala saman í nokkra mánuði núna,“ sagði heimildarmaður Us Weekly fyrr í vikunni. Hann segir samband þeirra þó „á byrjunarstigi“ en þeim líki mjög vel hvoru við annað. 

„Pete lætur Emily hlæja og hann elskar hversu gáfuð hún er,“ bætti heimildarmaðurinn við, en þau eru sögð hafa kynnst í gegnum sameiginlega vini. 

Konurnar hrifnar af grínistanum

Það leynir sér ekki að Davidson er vinsæll meðal kvenpeningsins, en nú síðast var hann í sambandi með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian. Þar á undan var hann með tónlistarkonunni Ariönu Grande, fyrirsætunni Kaiu Gerber og leikkonunum Margaret Qualley og Kate Beckinsale.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson