Látinn 49 ára að aldri

Jason David Frank er látinn.
Jason David Frank er látinn. Ljósmynd/Wikipedia.org

Leikarinn Jason David Frank er látinn 49 ára að aldri. Frank var þekktastur fyrir að fara með hlutverk Tommy Oliver í Mighty Morphin Power Rangers og í fleiri Power Rangers-þáttum. 

Frank naut mikillar hylli í Power Ranger-þáttunum, en frægðar stjarna hans tók að rísa snemma á tíunda áratug síðustu aldar. 

Dánarorsök hans hefur ekki verið gefin út en heimildir Guardian gefa til kynna að hann hafi tekið sitt eigið líf. Frank kvæntist tvisvar, fyrst Shöwnu Frank, og átti með henni þrjú börn. Síðar Tammie Frank, og eignaðist með henni eitt barn. Hún sótti um skilnað við hann í ágúst á þessu ári. 

Ef þú telur þig vera í sjálfsvígshættu er hjálp­arsími Rauða kross­ins, 1717, op­inn all­an sól­ar­hring­inn. Einnig er net­spjall Rauða kross­ins, 1717.is, opið all­an sól­ar­hring­inn. Píeta-sam­tök­in veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218. Á net­spjalli á Heilsu­vera.is er einnig hægt að ráðfæra sig við hjúkr­un­ar­fræðing um næstu skref. Ef þú ert í bráðri hættu hringdu í 112.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin bend­ir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson