Tekur sér hlé vegna hættunnar á alzheimer

Chris Hemsworth tekur sér hlé.
Chris Hemsworth tekur sér hlé. AFP

Ástralski leikarinn Chris Hemsworth hefur ákveðið að taka sér tímabundið hlé frá leiklistinni eftir að hann komst að því að hann sé í hættu á að þróa með sér alzheimersjúkdóminn. Hemsworth er hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk Thors í kvikmyndum um ofurhetjuna. 

Hemsworth sagði frá því í viðtali við Vanity Fair í síðustu viku að hann hefði nýverið komist að því að hann væri með tvö gen sem auka líkurnar á alzheimersjúkdómnum og öðrum elliglöpum. 

Það að Hemsworth sé með tvö ein­tök af geninu ApoE4 bend­ir til þess að hann hafi hlotið það frá báðum for­eldr­um. Einn af hverj­um fjór­um er lík­leg­ur til að hafa eitt ein­tak af geninu. Hins veg­ar benda rann­sókn­ir til þess að aðeins 2-3% séu með tvö ein­tök af um­ræddu geni. Hemsworth er því tíu sinn­um lík­legri til þess að grein­ast með heila­bil­un á efri árum.

Hann tók þó skýrt fram að ekki væri um greiningu að ræða, heldur aðeins auknar líkur. Þetta kom í ljós þegar hann var í þáttunum Limitless sem Disney+ framleiðir. 

„Það er ekki eins og ég hafi fengið uppsagnarbréf,“ sagði Hemsworth sem er samt hættur störfum í þáttunum. „Þegar maður er viðkvæm­ur fyr­ir ein­hverju þá snýst allt um góðan næt­ur­svefn, halda streitu í lág­marki og passa upp á að fá góða nær­ingu og hreyfa sig. Þetta eru alltaf sömu tól­in sem þarf stöðugt að nota,“ sagði Hemsworth.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant