Leikkonan Minka Kelly og Dan Reynolds, söngvari hljómsveitarinnar Imagine Dragons eru sögð vera að stinga saman nefjum, en þau hafa sést á stefnumótum í borg englanna, Los Angeles undanfarnar vikur.
Sögusagnir um parið fóru á kreik eftir að þau sáust á stefnumóti á Cafe Stella, en samkvæmt heimildum Page Six eyddu þau meira en fimm klukkustundum á veitingastaðnum og fóru ekki heim fyrr en eftir miðnætti. Þá hafa þau einnig sést haldast í hendur í rómantískum göngutúr um götur Los Angeles.
Kelly og Reynolds eru bæði nýlega orðin einhleyp, en leikkonan sleit sambandi sínu við grínistann Trevor Noah í maí síðastliðnum eftir tvö ár saman.
Reynolds tilkynnti skilnað við eiginkonu sína til 10 ára, Aja Volkman, í september síðastliðnum. Þau eiga fjögur börn saman á aldrinum 3 til 10 ára.