Úti að borða með 25 árum yngri konu

Victoria Lamas og Leonardo DiCaprio fóru út að borða saman …
Victoria Lamas og Leonardo DiCaprio fóru út að borða saman í vikunni. Samsett mynd

Bandaríski leikarinn Leonardo DiCaprio virðist vera kominn með augastað á nýrri ungri konu. Fór leikarinn út að borða með hinni 23 ára gömlu fyrirsætu, Victoria Lamas, á þriðjudagskvöld í Los Angeles.

Fjölmiðlar vestanhafs greina þó frá því að DiCaprio og Lamas séu ekki komin í samband, en myndir náðust af þeim á veitingastaðnum The Bird Streets Club. 

Aldarfjórðungur skilur DiCaprio og Lamas að, en hann er 48 ára og varð einhleypur á árinu þegar hann og Camilla Morrone hættu saman, mánuði eftir að hún varð 25 ára.

Undanfarið hafa sögusagnir verið á kreiki að DiCaprio hafi verið að hitta fyrirsætuna Gigi Hadid. Voru þau til dæmis á sama hóteli í París í Frakklandi þegar tískuvikan fór fram þar í borg. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson