Þoldi ekki eiginmanninn fyrstu 10 árin

Fyrrverandi forsetahjón Bandaríkjanna, Michelle og Barack Obama.
Fyrrverandi forsetahjón Bandaríkjanna, Michelle og Barack Obama. AFP

Fyrrverandi forsetafrúnni Michelle Obama þótti eiginmaður sinn, Barack Obama, óþolandi fyrstu tíu árin af hjónabandi þeirra. Þessu greindi hún nýverið frá í viðtali hjá Revolt TV, en hún segir ástæðuna hafa verið misþungar byrðar sem þau báru.

Michelle ræddi fyrstu ár hjónanna af mikilli hreinskilni í viðtalinu, en hún segir uppeldi dætra þeirra tveggja hafa tekið toll af hjónabandi þeirra fyrstu tíu árin þegar þær voru ungar. Hún segir ójafnvægi hafa verið í uppeldinu, en þó þau hafi bæði verið á framabraut hafi hún fyrst og fremst séð um dætur þeirra á meðan stjórnmálaferill Barack blómstraði.

Barack og Michelle Obama hafa verið gift í 30 ár.
Barack og Michelle Obama hafa verið gift í 30 ár. AFP

„Hjónaband er ekki 50/50“

Í viðtalinu segist hún hafa verið ósátt við það að eiginmaður hennar gæti eytt tíma í að fara í golf eða ferðast með vinnunni á meðan hún átti í fullu fangi með að finna jafnvægi milli vinnu sinnar sem lögfræðingur og uppeldi barnanna þeirra. 

„Hjónaband er ekki 50/50 - aldrei. Stundum ég ég 70 og hann 30. Það koma tímar þar sem hann er 60 og ég 40, en getið þið hvað? Við höfum verið gift í 30 ár,“ sagði Michelle og bætti við að tíu slæm ár af 30 væri ekki svo slæmt. 

Þó Obama-hjónin virðist alltaf jafn ástfangin hafa þau gengið í gegnum súrt og sætt saman. Þau hafa bæði talað opinskátt um erfiðleikana sem hafa fylgt hjónabandinu, en Barack greindi frá hjónabandserfiðleikum þeirra innan veggja Hvíta hússins í bókinni A Promised Land. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant