Strax komin með nýjan

Eric André og Emily Ratajkowski.
Eric André og Emily Ratajkowski. Samsett mynd

Fyrirsætan Emily Ratajkowski hætti með grínistanum Pete Davidson rétt fyrir áramót. Hún var ekki lengi ein en hún sást sleikja sárin með öðrum skemmtikrafti um helgina grínistanum Eric André. 

Ratajkowski og André sáust saman úti að borða á hinum vinsæla japanska veitingastað Sakagura í New York að því fram kemur á vef Page Six. Parið var ekki að fela sig en grínistinn bókaði borðið undir sínu nafni. Þau virtust hafa skemmt sér vel og brostu út í annað þegar þau yfirgáfu staðinn. Þau sáust meðal annars halda utan um hvort annað þegar þau gengu um Manhattan. 

Em­ily Rataj­kowski og grín­istinn Pete Dav­idson byrjuðu saman í nóvember eft­ir að hafa bæði gengið í gegn­um sam­bands­slit sem voru áber­andi í fjöl­miðlum. Tveimur vikum eftir að fréttist að alvara væri komin í spilin voru þau hætt saman. 

Pete Davidson og Emily Ratajkowski saman á körfuboltaleik.
Pete Davidson og Emily Ratajkowski saman á körfuboltaleik. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson