Bandaríski leikarinn Leslie Jordan lést vegna bráðrar hjartabilunar (e. sudden cardiac dysfunction). Þetta kemur fram í skýrslu dánardómsstjóra í Los Angeles en Page Six hefur skýrsluna undir höndum.
Hinn 67 ára gamli Jordan lést 24. október á síðasta ári, en hann var undir stýri á bifreið sinni og ók á byggingu. Grunur lék á að hann hefði veikst alvarlega undir stýri og að það hefði valdið slysinu.
Jordan var þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Will & Grace.
Greint var frá því að dagana fyrir andlátið hafi Jordan verið andstuttur og ekki upp á sitt besta, en hann var við tökur á American Horror Story.