Einar Bárðar fagnar 25 ára höfundarafmæli

Einar Bárðarson ætlar að halda upp á 25 ára höfundarafmæli …
Einar Bárðarson ætlar að halda upp á 25 ára höfundarafmæli sitt.

Einar Bárðarson ætlar að fagna því núna um mánaðamótin að 25 ár eru liðin frá því að lagið Farin með Skítamóral var frumflutt, á skírdag árið 1998. Lagið skaust á topp íslenska listans í júní það ár og sat þar í þrjár vikur.

Í framhaldi af því samdi Einar fleiri lög fyrir Skítamóral og einnig lög fyrir hljómsveitina Á móti sól. Síðan bættust við Eurovisionlag, lög fyrir Stjórnina, Jóhönnu Guðrúnu og Björgvin Halldórsson svo aðeins nokkur séu nefnd.

Fyrirferðarmikill lagahöfundur um aldamótin

Þá stóð Einar á bak við stofnun Nylon flokksins sem sló eftirminnilega í gegn árið 2004 og á hann mikið af lögunum á fyrstu plötunum þeirra, bæði einn og í samvinnu við Friðrik Karlsson lagahöfund, gítarleikara og framleiðanda. Þá er hægt að finna lög eftir Einar í flutningi Garðars Thórs Cortes, Lízu Einarsdóttur og Hvanndalsbræðra sem nokkrir séu upptaldir.

Einar ásamt þeim Herbert Viðarssyni bassaleikara Skítamórals og Arngrímur Fannari …
Einar ásamt þeim Herbert Viðarssyni bassaleikara Skítamórals og Arngrímur Fannari gítarleikara og bróður Einars í útgáfupartýi fyrir plötuna nákvæmlega sem kom út vorið 1998 og innihélt meðal annars Farin mest spilaða lag hljómsveitarinnar frá upphafi.

Þrír tónleikar og nánast uppselt á Selfossi

Einar ætlar að fagna þessum áfanga með þremur lágstemmdum kvöldstundum, á Sviðinu á Selfossi föstudaginn 24. febrúar, Græna hattinum föstudaginn 3. mars og á Sjálandi í Garðabæ fimmtudagskvöldið 9. mars. Það eru aðeins örfáir miðar eftir á Sviðinu á Selfossi en ennþá eru til miðar á Akureyri og í Garðabæ.

Með Einari verða vinir hans og samstarfsmenn til áratuga, þeir Gunnar Ólason og Magni Ásgeirsson. Saman hafa þeir tveir sungið mest spiluðu lög Einars frá upphafi, lög sem eru með um og yfir milljón spilanir á Spotify. Það eru lögin Farin og Myndir með Skítamóral og Spenntur og Allt með Á móti Sól. „Ég hlakka mikið til, mér þykir líka vænt um að strákarnir gefi sér tíma til að koma og gera þetta með mér. Ég held að lagalistinn sé eitthvað um átján lög,“ segir Einar þegar hann er spurður út í kvöldið.

Syngur Nylon lögin með sínu nefi

„Ég lofa fólki sem á annað borð hefur gaman af lögunum mínum að það verður mjög gaman. Sögurnar á bak við lögin fá smá svigrúm en þvælast ekki fyrir lögunum,“ bætir Einar við. „Það getur vel verið að óvæntir gestir kíki til okkar en það er best að lofa sem minnstu. En ég held að vinum mínum hlakki mikið til að hlusta á mig syngja Nylon lögin. Friðgeir vinur minn hefur verið að bíða eftir því í sex ár að ég syngi Nylon lagið Fimm á richter.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant