Byrjaður að fara á stefnumót eftir skilnaðinn

NFL-kappinn Tom Brady er byrjaður að fara á stefnumót eftir …
NFL-kappinn Tom Brady er byrjaður að fara á stefnumót eftir skilnaðinn. Skjáskot/Instagram

NFL-stjarnan Tom Brady er byrjaður að fara á stefnumót eftir skilnað hans og ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen. 

Brady virðist vera tilbúinn að finna ástina á ný, en heimildarmaður Page Six segir hann vera byrjaðan að fara á stefnumót. „Hann er að versla. Hann er á ferðinni,“ útskýrði hann og bætti við að Brady væri þegar búinn að fara á nokkur stefnumót. 

Brady og Bündchen höfðu verið gift í 13 ár þegar þau ákváðu að skilja í október síðastliðnum. Skilnaðurinn vakti mikla athygli í fjölmiðlum þar sem Brady var sagður hafa valið fótboltann yfir eiginkonu sína.

Brady og Bündchen eiga tvö börn saman, Vivian og Benjamin. Þá á Brady einnig soninn Jack með fyrrverandi kærustu sinni, Bridget Moynahan. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson