Fókus sigraði i Músíktilraunum

Hljómsveitin Fókus fagnaði þegar úrslitin voru kunngjörð.
Hljómsveitin Fókus fagnaði þegar úrslitin voru kunngjörð. Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson

Hljómsveitin Fókus bar sigur úr bítum í Músíktilraunum en úrslitakvöld keppninnar fór fram í gærkvöldi. Annað sætið hreppti TORFI og þriðja sætið hlaut Dóra & Döðlurnar. Í almennri símakosningu tók hljómsveitin Marsipan titilinn Hljómsveit fólksins.

Í ár var einnig kynntur til sögunnar nýr verðlaunaflokkur sem ber titilinn Höfundaverðlaun FTT (Félag tónskálda og textahöfunda) og var það hljómsveitin Dóra & Döðlurnar sem hlaut þann heiður fyrir lagið „Á gatnamótum“ og fékk 200.000 krónur í styrk.

Þá hlutu eftirtalin einstaklingsverðlaun:

Söngur: Alexandra Hernandez/Amylee Trindade - Fókus

Bassi: Jón Ragnar Einarsson – Sigurlilja/Guttarnir

Hljómborð: Anna Lára Grétarsdóttir - Fókus

Gítar: Ásgeir Kjartansson - BKPM

Trommur: Þórarinn Þeyr Rúnarsson - Guttarnir

Rafheili: Óðal Hjarn – Einakróna/Emma

Höfundaverðlaun FTT: Dóra & Döðlurnar fyrir Á Gatnamótum

Íslenskir textar: Helgi Þorleifur Þórhallsson – Flyguy

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant