„Allt sem hugurinn girnist“ á einni hátíð

Hér má sjá Ragnar, kynni hátíðarinnar á sviði.
Hér má sjá Ragnar, kynni hátíðarinnar á sviði. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Kynnir Skjaldborgarhátíðarinnar á Patreksfirði segir stemminguna hafa verið mjög góða á svæðinu. Hátíðin í ár hafi verið með þeim betur sóttari en hátíðin hefur verið haldin í sextán ár aða frá árinu 2007.

„Þetta er heimildamyndahátíð á Patreksfirði í einu elsta bíóhúsi landsins Skjaldborgarbíói, sem er 160 sæta bíóhús með öllum nýtískugræjum. Ef þú vilt fá frábæra stemmingu á líkama og sál og vera í góðum hópi fólks og tala um heimildamyndir og lífið í sínu víðasta samhengi myndi ég koma. Ef þú kaupir þér hátíðarpassa þá færðu fiskiveislu í boði Odda sem er fiskvinnslufyrirtækið á svæðinu, plokkfiskur er framreiddur í boði kvenfélagsins, það er ball, þannig það er bara einhvern veginn allt sem hugurinn girnist á þessari hátíð,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason, kynnir hátíðarinnar í samtali við mbl.is.

Sautján heimildarmyndir eru frumsýndar á hátíðinni í ár. Hátíðin var sett á föstudag og lýkur með pompi og prakt í kvöld.

Nýr „Einar“ smíðaður á hverju ári 

Ragnar hefur verið kynnir hátíðarinnar í tíu ár og segir hann andrúmsloftið í bænum, móttökur íbúa og verðlaunagripinn, Einarinn, standa upp úr.

Verðlaunaafhending hátíðarinnar fer fram í kringum miðnætti í kvöld en nýr Einar, sem er áhorfendaverðlaunagripur, er smíðaður ár hvert.

„Áhorfendakosning fer fram í bíóinu eftir síðustu myndina, um tíu leytið í köld, svo eru þau tilkynnt á balli ásamt þessum dómnefndarverðlaunum sem eru önnur verðlaun sem eru ákveðin af þriggja manna dómnefnd sem er alltaf ólík eftir árum,“ segir Ragnar en ókeypis er í bíó á hátíðinni.

Bíóhúsið fræga.
Bíóhúsið fræga. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Þakklátur fjöllunum og fólkinu

Hann segir greinilegt að  hræðslan sé endanlega farin úr fólki en hátíðin í ár sé með þeim betur sóttari.

Ragnar segist þakklátur Patreksfirði og íbúum á svæðinu.

„Þakkir til Patreksfjarðar, fólksins á Patreksfirði og fjallanna í kringum Patreksfjörð þakka þeim kannski sérstaklega,“ segir Ragnar að lokum.

Frekari umfjöllun um hátíðina úr Morgunblaði föstudagsins má sjá með því að smella hér

mbl.is

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður beðinn um að taka að þér vandasamt verk og þarft að gera þér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir. Frestaðu því ekki að ræða erfið mál við þína nánustu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Emil Hjörvar Petersen
2
Shari Lapena
3
Fífa Larsen
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Lars Kepler

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður beðinn um að taka að þér vandasamt verk og þarft að gera þér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir. Frestaðu því ekki að ræða erfið mál við þína nánustu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Emil Hjörvar Petersen
2
Shari Lapena
3
Fífa Larsen
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Lars Kepler