Söngvarinn Lewis Capaldi hefur aflýst þeim tónleikum sem voru á dagskrá næstu þrjár vikurnar. Segist hann þurfa á hvíld að halda og ætli að njóta þess að vera Lewis frá Glasgow í nokkrar vikur.
Capaldi verður með tónleika hér á landi í ágúst, svo þessi ákvörðun mun ekki hafa áhrif á þá.
Capaldi tilkynnti þetta á Instagram og segir að tourette-heilkennið og kvíðinn sem hann glímir við hafi haft mikil áhrif á feril sinn síðustu mánuðina. Vegna þess hafi hann ákveðið að aflýsa öllum tónleikum sínum sem áætlaðir voru fram að tónleikum hans á Glastonbury-hátíðinni hinn 24. júní næstkomandi.