Hættir að leika eftir þrjú ár fyrir eiginkonuna

Bryan Cranston vill eyða meira tíma með heittelskaðri eiginkonu sinni, …
Bryan Cranston vill eyða meira tíma með heittelskaðri eiginkonu sinni, Robin Deardren. AFP/Loic Venance

Leikarinn Bryan Cranston hefur heitið konunni sinni, Robin Dearden, að hætta að leika árið 2026 svo hann geti varið meiri tíma með henni. Segir hann að hún hafi lifað lífi sínu síðustu 24 árin í skugganum af honum og þurft að haga lífi sínu út frá hans lífi. Nú sé kominn tími til þess að jafna þetta út.

Cranston opnar sig um þessar fyrirætlanir fyrir næstu þrjú árin í viðtali við breska tímaritið GQ. Segir hann frá því að þau hjónin hafi verið í pararáðgjöf síðan áður en þau giftu sig. Cranston segist elska konu sína heitt og vilji leggja sitt af mörkum til að viðhalda heilbrigðu sambandi. Hingað til hafi hún alltaf verið þessi plús einn, eiginkona frægrar manneskju, og vill Cranston binda endi á það.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson