Jewells Chambers hefur búið á Íslandi í hartnær sjö ár og starfað við stafræna markaðssetningu síðan hún flutti til landsins árið 2016. Í heimsfaraldrinum árið 2020 ákvað hún að hætta í dagvinnunni sinni hjá auglýsingastofu og hella sér að fullu í myndbanda- og hlaðvarpsgerð undir nafninu „All things Iceland.“ Tækifærin hafa ekki látið á sér standa síðan þá og tók hún nýlega þátt í verkefni með leikaranum Rainn Wilson.
Efni Chambers, sem sjá má víða á samfélagsmiðlum eins og TikTok og Instagram, snýr að ferðalögum á Íslandi ásamt menningarlegum molum um ýmsa hluti. Hún fjallar um allt frá íslenskum hefðum yfir í hvernig skuli haga sér í kringum land og þjóð.
Chambers er fædd og alin upp í Brooklyn í New York í Bandaríkjunum og kom til landsins eftir að hafa, eins og svo margir aðrir, orðið ástfangin. Hún kynntist íslenskum fyrrverandi eiginmanni sínum þegar hún var nítján ára gömul og í háskólanámi en þó samband þeirra hafi liðið undir lok á síðasta ári hefur ást hennar á landi og þjóð ekki dvínað.
Í samtali við mbl.is segist Chambers hafa verið ákveðin í því að vera búin að finna sér vinnu áður en hún flytti til landsins, en í New York starfaði hún við stafræna markaðssetningu. Á endanum fann hóf hún störf hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Icelandic Mountainguide sem efnis- og markaðsstjóri og fór svo yfir á auglýsingastofuna Pipar/TBWA.
„All things Iceland“ segir hún hafa byrjað sem hlaðvarp vegna þess að svo margir í kringum hana sögðust ekkert vita um Ísland en vildu vita meira.
„Ég ætlaði að gera þetta í ár og sjá hvernig þetta myndi fara. Það kom mér á óvart hvað þetta var erfitt en mikið skemmtilegra en mér datt í hug. Ég byrjaði að fá mjög jákvæð skilaboð og endurgjöf á hlaðvarpið og hugsaði: Okei, kannski er ég komin með eitthvað. Ég fór svo að birta efni á YouTube og Instagram. Ég var enn í fullri vinnu með þetta sem hliðarverkefni, mér datt ekki í hug að þetta gæti orðið að arðbærri vinnu fyrir mig,“ segir Chambers en hún ákvað að taka stökkið, segja upp vinnunni og taka sénsinn á verkefninu í byrjun árs 2020.
Nú hefur fylgjendafjöldi Chambers og „All things Iceland“ vaxið verulega og er hún með rúmlega 40 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlunum Instagram og TikTok.
Út frá því hafa sprottið hin ýmsu tækifæri en nú nýlega kom út þáttasería í umsjón leikarans Rainn Wilson sem snýst um hamingju og hvar hana sé að finna. Fyrsti þáttur seríunnar var tekinn upp hér á landi og var Chambers einn viðmælenda Wilson í þættinum. Þættirnir heita „Geography of Bliss“ og eru framleiddir fyrir Peacock sem er streymisveita sjónvarpsrisans NBC.
Spurð hvernig þetta kom til segir hún íslenskan framleiðanda frá fyrirtækinu Arctic productions hafa haft samband við sig í gegnum samfélagsmiðla og spurt hvort hún hefði áhuga á að taka þátt.
Hún segir ferlið allt einkennast af hlutum sem hafi „átt að gerast“. Í fyrsta lagi hafi í raun verið magnað að hún hafi séð skilaboðin frá íslenska framleiðandanum, í öðru lagi hafi hún síðan farið í viðtal hjá bandarískum framleiðanda sem í Brooklyn og í þriðja lagi hafi Ísland upphaflega ekki átt að vera í seríunni, heldur Finnland.
„Ísland átti ekki að vera í fyrstu seríunni heldur Finnland en [...] vegna stríðsins í Úkraínu og nálægð Finnlands við Rússland vildu þau ekki taka sénsinn og Finnlandi var skipt út fyrir Ísland,“ segir Chambers.
Daginn sem tökur á þættinum hófust komu framleiðendurnir heim til hennar til þess að undirbúa bílinn sem þau myndu keyra um á og mætti Wilson svo loks á staðinn.
„Í byrjun var ég ekki viss um hvað ég ætti að segja, hann er auðvitað fínn gaur en svo er þetta líka Dwight Schrute. Ég hugsaði: Ég ætla ekki að segja það. Ég er mjög stolt af sjálfri mér, ég vitnaði ekkert í The Office. Ég vildi ekki vera vandræðalega manneskjan,“ segir Chambers og hlær en Wilson er vel þekktur fyrir hlutverk sitt í fyrrnefndum þáttum.
Hún segist hafa haft það sem markmið að láta Wilson fara að hlæja og vera viss um að hann skemmti sér vel.
Á meðan á tökum Chambers og Wilson stóð fóru þau á nokkra staði eins og á Laugaveg og í Alþingisgarðinn en á endanum rataði aðeins einn inn í þáttinn að ráði og það var ferð í ísbúðina Skúbb í klassískum, rammíslenskum, ísbíltúr.
Á Skúbb ræddu þau um heima og geima og Wilson smakkaði bragðarefinn „Lakkrís, lakkrís, lakkrís“ sem er á boðstólum hjá Skúbb. Í honum er lakkrísduft, lakkrís, lakkríssósa og lakkrís ís.
Chambers segir það hafa verið skemmtilegt að ræða við Wilson. Þau hafi þó rætt margt sem fylgdi ekki með inn í þáttinn en stutt umræða um hennar upplifun sem svört kona á Íslandi rataði inn.
„Ég var til dæmis beðin um að tala um mína upplifun sem svört kona á Íslandi og ég tala um það en ég dvel ekki við það. Reynslan mín hérna hefur verið þannig að mér finnst ég ekki þurfa að gera það. Það er vissulega mikilvægt en ég horfi á það þannig að mér finnst frábært að vera ekki með sömu pressu á mér eins og í kringum rasismann í Bandaríkjunum. [...] Mér líður eins og ég geti andað og verið ég sjálf og það er mjög hughreystandi að vita það,“ segir Chambers.
Í þættinum fer Wilson um víðan völl. Hann ræðir við hina ýmsu Íslendinga eins og til dæmis leikarann og grínistann Jón Gnarr um borgarstjórasætið og íslenskar sögur, Pálínu Axelsdóttur Njarðvík og hennar fjölskyldu um lífið á íslenskum bóndabæ, hljómsveitina Ateria um andlega heilsu Íslendinga og skellir sér í sjósund með „Glaðari“ hópnum.
Hvað varðar framhaldið fyrir „All things Iceland“ segist Cahmbers vonast til þess að geta tekið fleiri viðtöl við áhugavert fólk á Íslandi og geta birt myndbönd af því á YouTube. Þá vinni hún til dæmis sem ráðgjafi fyrir ferðalanga sem hingað vilja koma og þróa ferðaþjónustusmáforrit.
„Menning hefur alltaf verið stór hluti af þessu fyrir mig. Stór hluti snýst um það hvernig íslensk menning tengist inn í hlutina og hvernig megi sýna fólki hana innan frá. Ég vil kafa dýpra og dýpra,“ segir Chambers. Hún bætir því við að hún vilji sýna íslenska menningu á dýpri máta sem sé áhugaverður bæði fyrir ferðalanga og Íslendinga ásamt því að gefa jaðarsettum samfélagshópum rými.
Að lokum segist hún þakklát fyrir að búa á Íslandi og fá tækifæri sem þessi. Henni líði eins og hún eigi svo sannarlega heima hérna og síðustu sjö árin hafi komið henni verulega á óvart.
„Ég vil alltaf segja frá því hvað ég er þakklát fyrir þennan stað og að geta lært og miðlað um hann.“