Meghan geti þénað 132 milljónir fyrir Instagram-færslu

Meghan hertogaynja af Sussex hefur ekki verið með Instagram-reikning síðan …
Meghan hertogaynja af Sussex hefur ekki verið með Instagram-reikning síðan hún giftist Harry prins. AFP

Fjármálasérfræðingurinn Eric Schiffer spáir því að Meghan hertogaynja af Sussex gæti þénað allt að milljón bandaríkjadala, sem nemur rúmum 132 milljónum króna, fyrir eina færslu á Instagram.

Fyrr í vikunni greindu fjölmiðlar frá því að Meghan hefði tryggt sér notendanafnið @meghan á Instagram, en hún hefur ekki verið með eigin reikning á Instagram frá því hún giftist Harry prins.

Þurfi að fara „varlega“ af stað

„Ég myndi búast við því að hún yrði fljótt einn af þeim reikningum sem eru með flesta fylgjendur á Instagram. Þegar þú ert með orðstír eins og Kardashian-systurnar þá getur þú þénað milljón bandaríkjadala eða meira fyrir eina færslu með því að kynna vöru,“ sagði Schiffer í samtali við Daily Mail.  

Hann segi Meghan þó þurfa að fara „varlega“ ef hún ákveður að stofna reikning einn daginn og velja vel hvaða vörur hún ákveður að kynna á síðunni sinni. „Hún þarf að samræmast gæðavörumerkjum og fyrirtækjum sem eru í takt við pólitíska og félagslega trú hennar,“ sagði Schiffer. 

mbl.is

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það hentar þér best að vinna ein/n í dag því aðrir munu bara tefja þig. Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara og því er betra að gæta orða sinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Kathryn Hughes
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Birgitta Haukdal
5
Freida McFadden

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það hentar þér best að vinna ein/n í dag því aðrir munu bara tefja þig. Mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara og því er betra að gæta orða sinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Kathryn Hughes
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Birgitta Haukdal
5
Freida McFadden