Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í kvöld í Silfurbergi í Hörpu.
Meðal þeirra sem komu fram á glæstri hátíð tónlistarfólks í kvöld voru Elín Hall, Hipsumhaps, Bára Gísladóttir, Spacestation og PATRi!K, en mandólínleikarinn og Geirfuglinn Freyr Eyjólfsson sá um veislustjórn.
Samtals voru veitt 22 verðlaun en þeirra á meðal eru Heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna, sem Hörður Áskelsson organisti og kantor hlaut.
„Mér finnst þetta mikill heiður. Þetta eru sérstök verðlaun sem ná yfir margt og helsta tónlistarfólk Íslands hefur fengið þau. Ég er því kominn í góðan hóp og það er dýrmætt að finna með þessum hætti að störf mínu séu mikils metin,“ sagði Hörður Áskelsson, í samtali við Morgunblaðið, en lengra viðtal má finna við Hörð í Morgunblaðinu á morgun, miðvikudag.
Auk heiðursverðlaunanna eru verðlaunin Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi einnig afhent og var það tónlistarmaðurinn ungi Kári Egilsson sem hlaut þau.
Ein verðlaun voru þó ekki afhend í kvöld, en það eru verðlaun fyrir plötuumslag ársins en þau eru unnin í samstarfi við Félag íslenskra teiknara og verða afhent á FÍT-verðlaununum 22. mars.
PLÖTUR ÁRSINS:
Sígild og samtímatónlist
Atli Heimir Sveinsson: The Complete String Quartets - Siggi String Quartet
Djasstónlist
Innermost - Mikael Máni Ásmundsson
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist
Museum - JFDR
Önnur tónlist
BRIDGES II - Ægir
Kvikmynda- og leikhústónlist
Knock At The Cabin - Herdís Stefánsdóttir
FLYTJENDUR ÁRSINS
Djasstónlist
Andrés Þór Gunnlaugsson
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist
Laufey
Sígild og samtímatónlist
Sæunn Þorsteinsdóttir
Önnur tónlist
Mugison
SÖNGUR ÁRSINS
Djasstónlist
Kristjana Stefánsdóttir
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist
Laufey
Sígild og samtímatónlist
Jóhann Kristinsson
LÖG OG TÓNVERK ÁRSINS
Önnur tónlist
Wandering Beings - Guðmundur Pétursson
Sígild og samtímatónlist
COR - Bára Gísladóttir
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist
Skína - PATRi!K, Luigi
Djasstónlist
Íslendingur í Uluwatuhofi - Stefán S. Stefánsson
- - -
Tónlistarviðburður ársins
Sumarjazz á Jómfrúnni - Jómfrúin og Jakob Einar Jakobsson
Upptökustjórn ársins
I Am Weary, Don't Let Me Rest - Snorri Hallgrímsson
Upptökustjórn: Bergur Þórisson, Cécile Lacharme, Hafsteinn Þráinsson, Martyn Heyne, Snorri Hallgrímsson, Styrmir Hauksson, Viktor Orri Árnason og Þorsteinn Eyfjörð
Texti ársins
Hún ógnar mér - Vigdís Hafliðadóttir
Tónlistarmyndband ársins
Waiting - Árný Margrét
Leikstjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson
Bjartasta vonin
Kári Egilsson
Plötuumslag ársins (ATH: Aðeins tilnefningar birtar)
Átta - Sigur Rós: Hönnun: Ragnar Helgi Ólafsson
v2,2 - Róshildur: Hönnun: Þorgeir Kristinn Blöndal
Museum - JFDR: Hönnun: Gréta Thorkelsdóttir og Dóra Dúna
Gleypir tígur, gleypir ljón - Tumi Árnason og Magnús Tryggvason Eliassen: Hönnun: Héðinn Finnsson (Íbbagoggur)
How to Start a Garden - Nanna: Hönnun: Davíð Arnar Baldursson og Ragnar Þórhallsson
Ást & praktík - Hipsumhaps: Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson