Slasaðist í skíðaslysi og hlaut varanlegan skaða af

Sam Smith.
Sam Smith. Ljósmynd/AFP

Breski söngvarinn Sam Smith lenti í alvarlegu skíðaslysi fyrr á árinu. Hán ræddi um slysið og afleiðingar þess í hlaðvarpsþættinum Sidetracked with Annie and Nick á dögunum. 

Hán, þekkt fyrir lög á við Unholy, Dancing with a Stranger, Stay With Me og I'm Not the Only One, viðurkenndi að hafa slitið fremra krossbandið og átt í erfiðleikum með gang í dágóðan tíma á eftir.

„Ég sleit fremra krossband á hægri fæti. Ég var að renna mér á skíðum. Ég lét eins og hálfviti og ákvað að renna niður skíðabrekku sem ætluð er lengra komnum og það á degi tvö. Það voru mistök,“ sagði Smith við þáttastjórnendurna, Annie Macmanus og Nick Grimshaw. 

Smith sagðist hafa hlotið varanlega skaða af slysinu en ræddi það ekkert nánar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Best væri að tryggja að sem minnst fari fyrir hlutunum. Þú ert í ævintýraham og til í slaginn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Best væri að tryggja að sem minnst fari fyrir hlutunum. Þú ert í ævintýraham og til í slaginn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir