Bandaríski leikarinn Weston Cage, sonur Nicolas Cage og Christinu Fulton, lýsti sig saklausan af ákæru um líkamsárás með banvænu vopni við þingfestingu í Los Angeles á miðvikudag.
Cage, sem er 33 ára, var handtekinn síðla júní eftir að hafa ráðist á móður sína í reiðiskasti miklu örfáum mánuðum áður.
Undir lok aprílmánaðar barst lögreglunni í Los Angeles símtal þar sem Fulton ásakaði son sinn um að hafa gengið í skrokk á sér og öðrum ónefndum einstaklingi. Þegar lögreglan mætti á svæðið var Cage flúinn af vettvangi.
Stuttu eftir handtöku sonar síns viðurkenndi Fulton að Cage hafi augljóslega verið í miklu andlegu ójafnvægi.
„Þann 28. apríl síðastliðinn bárust mér skilaboð frá góðvinum sonar míns um versnandi andlegt ástand hans. Ég var vinsamlegast beðin um að mæta á svæðið til þess að reyna að róa hann niður. Þegar ég kom á staðinn var hann í mikilli maníu. Réðst hann þá á mig og barði mig,“ sagði Fulton.
Dómari úrskurðaði Cage í tímabundið nálgunarbann gegn móður sinni á meðan dómsmálið er í gangi.