Tónlistarhátíðin Blús milli fjalls og fjöru fór fram í þrettánda sinn um helgina í félagsheimilinu á Patreksfirði og var vel sótt.
Yfir 100 gestir mættu á hátíðina að þessu sinni en dagskráin í ár byggði á dægurlaga- og rokktónlist í bland við blúsinn sem hátíðin kennir sig við.
Á föstudagskvöldinu steig blúsbandið Litli matjurtagarðurinn fyrst á stokk en það samanstendur af valinkunnum reynsluboltum sem spila gjarnan tónlist eftir Jimi Hendrix og aðra meistara sjöunda áratugarins.
Á eftir Litla matjurtargarðinum kom hin sívinsæla hljómsveit Bjartmar og bergrisarnar fram og lokaði kvöldinu.
Dagskrá laugardagsins hófst á tónleikum Rock Paper Sisters en söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlausson leiðir þá hljómsveit.
Síðust steig á stokk önnur rokkhljómsveit, The Vintage Caravan, við góðar undirtektir.