Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og athafnakona, birti á dögunum gamlar myndir frá árinu 2009 úr Playboy-höllinni á Instagram-síðu sinni.
Ásdís Rán var á forsíðu tímaritsins Playboy í júlí árið 2010, en þá hafði hún verið að gera það gott í Búlgaríu og sagði verkefnið það stærsta sem hún hefði tekið að sér. „Ég geri alveg ráð fyrir því að margar húsmæður á Íslandi fussi yfir mér núna en þetta er mín vinna og það geta því miður ekki allir verið eins,“ sagði hún á þeim tíma í samtali við mbl.is.
Síðan þá hefur verið nóg um að vera hjá Ísdrottningunni sem kemur landsmönnum sífellt á óvart. Nú síðast þegar hún tilkynnti framboð sitt til forseta Íslands í nýafstöðnum forsetakostningum.
Um helgina birti Ásdís gamlar myndir sem hún rakst á úr Playboy-höllinni, en myndirnar eru frá árinu 2009.
„Kynþokkafullur laugardagur. Rakst á þessar ómentanlegu myndir frá árinu 2009. Frá Los Angeles með vini mínum Cuba og sú seinni er frá Playboy-höllinni,“ skrifaði Ásdís Rán við myndirnar.