Bandaríska leikkonan Jodie Foster var valin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í smáþáttaröðinni True Detective: Night Country á Emmy-verðlaunahátíðinni í nótt.
Þáttaröðin, sem sló áhorfsmet hjá HBO, var að stórum hluta tekin upp á Íslandi, bæði í Keflavík og á Dalvík, og komu margir Íslendingar að framleiðslu þeirra.
Leikkonan var tilnefnd ásamt þeim Brie Larson, Juno Temple, Sofíu Vergara og Naomi Watts.
Foster brá þegar nafn hennar var kallað og tók það leikkonuna smá tíma að átta sig á sigrinum. Leikkonurnar Lily Gladstone og Greta Lee færðu Foster verðlaunin.
Foster notaði tækifærið í þakkarræðunni og þakkaði íslenska starfsliðinu með orðunum: „Takk fyrir.“
Foster og aðrir leikarar þáttaraðarinnar hafa farið fögrum orðum um Ísland og dvöl sína hér á landi síðustu mánuði. Öll eru þau sammála um að Ísland sé einstakur staður með yndislegu fólki, fjölskrúðugu menningarlífi og ómældri náttúrufegurð.
Leikkonan sagði einnig að hún gæti vel hugsað sér að flytja til Íslands ef það væri ekki fyrir kuldann.