Onlyfans-stjarnan Skyler Simpson hefur hlotið töluverða gagnrýni fyrir ósmekklegt veðurfréttamyndband um fellibylinn Helene í Flórída sem sett var á samfélagsmiðla á dögunum, samkvæmt New York Post. Í myndbandinu gerir hún lítið úr mætti fellibylsins.
Alls 160 manns létust af völdum fellibylsins sem olli einnig sögulegum flóðum í suðausturhluta Bandaríkjanna.
Simpson sem er klædd í bleikt efnislítið strengjabikiní, haldandi á regnhlíf, fékk vatnsgusu í andlitið frá vegfaranda sem átti leið hjá á meðan hún tók upp myndbandið.
Myndband Simpsons hefur fengið yfir 1,8 milljónir áhorf á Tiktok en ekki eru allir á par sáttir við þetta uppátæki, þá sérstaklega þar sem margir eiga um sárt að binda eftir veðurofsann.