The Office-stjarna barðist hetjulega við ágengt brjóstakrabbamein

Fischer er þakklát fyrir að vera á lífi.
Fischer er þakklát fyrir að vera á lífi. Skjáskot/Instagram

Bandaríska leikkonan Jenna Fischer, best þekkt fyrir leik sinn í gamanþáttaröðinni The Office, greindi frá því á samfélagsmiðlum í gær að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein í lok síðasta árs.

Fischer ákvað að stíga fram og segja sögu sína í tilefni af alþjóðlega mánuði brjóstakrabbameins, en októbermánuður er víða um heim tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Fór í hefðbundna brjóstamyndatöku

Leikkonan, sem fagnaði fimmtugsafmæli sínu fyrr á árinu, fór í hefðbundna brjóstamyndatöku í október á síðasta ári. Niðurstöður úr myndatökunni sýndu hnút á vinstra brjósti hennar og var Fischer send í frekari rannsóknir.

Þann 1. desember var hún greind með ágengt krabbamein (e. Stage 1 Triple Positive Cancer) sem hafði heppilega ekki náð að dreifa sér til annarra líffæra. Krabbameinið var fjarlægt með skurðaðgerð stuttu síðar en leikkonan þurfti að undirgangast lyfja- og geislameðferð svo að meinið tæki sig ekki upp að nýju.

Fischer er nú laus við krabbameinið og horfir björtum augum á framtíðina.

Margar Hollywood-leikkonur rituðu athugasemdir við færslu Fischer og  þökkuðu henni fyrir að stíga fram og opna á umræðuna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú þýðir ekkert að húka lengur heima yfir engu. Skelltu þér í göngutúr um nágrennið og athugaðu hvort þú hressist ekki við. Þú ferð á stefnumót bráðlega sem verður þér til gæfu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú þýðir ekkert að húka lengur heima yfir engu. Skelltu þér í göngutúr um nágrennið og athugaðu hvort þú hressist ekki við. Þú ferð á stefnumót bráðlega sem verður þér til gæfu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Carla Kovach
5
Kolbrún Valbergsdóttir