Tónlistarkonan Laufey Lín Bing Jónsdóttir er ekki eini Íslendingurinn á lista Forbes yfir einstaklinga, 30 ára og yngri, sem skarað hafa fram úr í tónlistarheiminum á árinu sem er að líða.
Íslenski athafnamaðurinn Bjarki Lárusson skipar einnig sæti á listanum ásamt félögum sínum, Gregory Hirschorn og Alex Silverstein, en þríeykið stofnaði streymisveituna Too Lost sem auðveldar tónlistarfólki að koma tónlist sinni áfram.
Fyrirtækið er á fljúgandi siglingu og samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Forbes þá þénaði Too Lost ríflega 22 milljónir bandaríkjadala á síðasta ári.