Gaf fötin sín í þágu góðgerðarmála

Jennifer Lopez hefur stutt við bakið á þeim sem urðu …
Jennifer Lopez hefur stutt við bakið á þeim sem urðu fyrir áföllum vegna gróðureldanna sem geisa í Los Angeles. Samsett mynd/Afp

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez kom fórnarlömbum gróðareldanna í Los Angeles til hjálpar með veglegu fataframlagi og öðrum nauðsynjum á dögunum. Eins og komið hefur fram í fréttum hafa fjölmargir íbúar misst húsin sín og þar með talið fatnað, húsgögn og fleira. 

Markaðsstofan A List stofnaði nýlega til söfnunar á fötum og öðrum nauðsynjum til að dreifa til fjölskyldna sem hafa orðið fyrir áhrifum eldanna. Lopez sýndi mikinn stuðning með fötunum. 

„Við fengum ótrúleg, örlát og falleg skilaboð frá Jennifer Lopez. Við fengum ótrúlegt magn af hlutum, stærsta framlagið hingað til. Svo, Guð minn góður Jennifer Lopez, þú ert mögnuð,“ segir einn forsprakki verkefnisins á Instagram. 

Lopez hefur hvatt fylgjendur sína og þá sem geta til að hjálpa fórnarlömbunum á samfélagsmiðlunum.

Jennifer Lopez gaf fatnað og aðrar nauðsynjar.
Jennifer Lopez gaf fatnað og aðrar nauðsynjar. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það reynir á andlega hæfni þína - á skemmtilegan hátt. Mundu því að koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Anna Sundbeck Klav
5
Patricia Gibney
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það reynir á andlega hæfni þína - á skemmtilegan hátt. Mundu því að koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Anna Sundbeck Klav
5
Patricia Gibney