Skrifaði undir þagnarskyldusamning við Britney Spears

Britney Spears og Sam Ashgari giftu sig í júní 2022.
Britney Spears og Sam Ashgari giftu sig í júní 2022. Skjáskot/Instagram.

Sam Ashgari, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, staðfestir í nýju viðtali að hafa skrifað undir þagnarskyldusamning um sjö ára samband hans og poppstjörnunnar.

Þetta sagði hann í hlaðvarpinu Viall Files í dag.

Þáttastjórnandinn, Nick Viall, spurði Asghari um orsök skilnaðar þeirra Spears. Asghari neitaði að svara og bar fyrir sig þagnarskyldu. 

Asghari virðist hafa verið duglegur við að koma fram upp á síðkastið og ræða einkalíf sitt en hann var síðast í hlaðvarpinu Sibling Rivalry með systrunum Kate og Oliver Hudson.  

„Ég held að það sem skipti mestu máli sé tíminn sem við eyddum saman, hlutirnir sem við höfum lært. Og það var stór hluti af lífi mínu og hennar líka.“ Þá bætti hann við að hann myndi alltaf bera virðingu fyrir söngkonunni og myndi kjósa, á einhverjum tímapunkti, að geta verið í sambandi við hana.

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður ekki ríkur á því að byggja skýjaborgir, en þú getur orðið það með því að hrinda einni af hugmyndum þínum í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sofie Sarenbrant
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Jill Mansell
4
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú verður ekki ríkur á því að byggja skýjaborgir, en þú getur orðið það með því að hrinda einni af hugmyndum þínum í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sofie Sarenbrant
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Jill Mansell
4
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
5
Sofie Sarenbrant