Óttaðist ljótan skilnað við Arnold Schwarzenegger

Patrick Schwarzenegger, sem leikur í The White Lotus, ásamt móður …
Patrick Schwarzenegger, sem leikur í The White Lotus, ásamt móður sinni Mariu Shriver. Til vinstri er Arnold Schwarzenegger. Samsett mynd/Chris DELMAS/AFP

Fyrrverandi eiginkona Arnolds Schwarzeneggers, Maria Shriver, deilir skilnaðarferlinu og taugaveikluninni sem það olli í nýrri bók, I am Maria

Shriver og Schwarzenegger eiga saman fjögur uppkomin börn, Katherine, 35 ára, Christinu, 33 ára, Patrick, 31 árs, og Christopher, 27 ára. Schwarzenegger, sem flestir þekkja úr Terminator-kvikmyndunum, starfaði einnig sem ríkisstjóri Kaliforníufylkis 2003-2011. Shriver og Schwarzenegger voru í hjónabandi árin 1986-2021.

Þau skildu eftir 25 ár, aðeins stuttu áður en Schwarzenegger viðurkenndi faðerni Joseph Baena sem hann eignaðist með húshjálpinni Mildred Patty Baena.

„Ég var þjökuð af sorg, reiði, ótta og kvíða,“ viðurkennir Shriver. „Ég var ekki lengur viss um hver ég væri, hvar ég ætti heima. Satt að segja var þetta ljótt og ég var dauðhrædd.“

Hún þurfti að yfirstíga óttann við að missa orðstírinn um hina fullkomnu amerísku fjölskyldu. Hún leitaði aðstoðar fjölda sérfræðinga og komst að því að ein leið til að komast yfir sorgina var að semja ljóð.

E News

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Á leiðinni upp á toppinn er erfitt að bera sig ekki saman við næsta mann, en þú skalt sleppa því. Með því að vera þú sjálfur færðu íhaldssamara fólk til að fara hjá sér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lotta Luxenburg
2
Sebastian Richelsen
3
Lone Theils
4
Jónína Leósdóttir
5
Guðrún J. Magnúsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Á leiðinni upp á toppinn er erfitt að bera sig ekki saman við næsta mann, en þú skalt sleppa því. Með því að vera þú sjálfur færðu íhaldssamara fólk til að fara hjá sér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lotta Luxenburg
2
Sebastian Richelsen
3
Lone Theils
4
Jónína Leósdóttir
5
Guðrún J. Magnúsdóttir