Skulda þrjár milljónir dollara í skatta

Glæsilífið sem þau Teresa Giudice og eiginmaður hennar Luis Ruelas …
Glæsilífið sem þau Teresa Giudice og eiginmaður hennar Luis Ruelas lifa virðist ekki svo flott á pappírum. Skjáskot/Instagram

Real Housewives of Jersey-stjarnan Teresa Giudice og eiginmaður hennar, Luis Ruelas, skulda nokkrar milljónir dollara í skatta. Þetta kemur fram í tímaritinu People.

Samkvæmt gögnum sem tímaritið hefur undir höndum nema skattaskuldirnar nú þremur milljónum dollara.

Raunveruleikaþáttastjarnan sem gekk í hjónaband með Ruelas 2022 hefur áður afplánað ellefu mánaða fangelsisdóm, árið 2015, fyrir póst- og gjaldþrotasvik. Hún hefur nokkrum sinnum talað opinberlega um dóminn og sagt dómstóla vilja gera úr honum fordæmi.

Fyrrverandi eiginmaður hennar, Joe Guidice, eyddi einnig tíma á bak við lás og slá fyrir sömu glæpi og þegar hann lauk 41 mánaðar afplánun 2019 skildu þau eftir tuttugu ára hjónaband. Guidice hefur ávallt sagt glæpinn á ábyrgð eiginmannsins fyrrverandi og segist einungis hafa skrifað undir pappíra, án þess að hafa nokkra hugmynd um hvað þeir snerust.

Guidice og Ruelas hittust í fríi á Jersey-ströndinni 2021 og trúlofuðu sig ári síðar. Samband þeirra olli miklu fjaðrafoki hjá þáttastjórnendum Real Houswives og áhorfendum en Ruelas var sakaður um að hafa ráðist á fyrrverandi unnustu sína.

People

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Við þurfum öll á heimili og fjölskyldu að halda. Gerðu varúðarráðstafanir vegna slysa og sýndu þolinmæði og samstarfsvilja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sebastian Richelsen
2
Lone Theils
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Torill Thorup
5
Kolbrún Valbergsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Við þurfum öll á heimili og fjölskyldu að halda. Gerðu varúðarráðstafanir vegna slysa og sýndu þolinmæði og samstarfsvilja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Sebastian Richelsen
2
Lone Theils
3
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
4
Torill Thorup
5
Kolbrún Valbergsdóttir