Mætti einsamall á frumsýningu

George Clooney var flottur á rauða dreglinum.
George Clooney var flottur á rauða dreglinum. AFP/Jamie McCarthy

Leikverkið Good Night and Good Luck með stórleikaranum George Clooney var frumsýnt í Winter Garden-leikhúsinu í New York-borg á fimmtudagskvöldið.

Rauði dregillinn var stjörnum prýddur, enda ríkti mikil spenna og eftirvænting fyrir frumraun Clooney á Broadway.

Meðal gesta voru Hollywood-stjörnurnar Pierce Brosnan, Jennifer Lopez, Uma Thurman, Cindy Crawford og Kylie Minogue sem skörtuðu sínu fegurstu og gengu dregilinn á leið inn í leikhúsið.

Clooney stillti sér upp á rauða dreglinum áður en hann hélt baksviðs.

Það vakti mikla athygli að eiginkona hans, mannréttindalögfræðingurinn Amal Clooney, var ekki á staðnum til að styðja eiginmann sinn á þessari stóru og mikilvægu stundu.

Leikarinn greindi frá því í viðtali við blaðamann að hún væri heima að sinna börnum þeirra, tvíburunum Alexander og Ellu.

Leikkonan Julianna Margulies mætti til að styðja vin sinn og …
Leikkonan Julianna Margulies mætti til að styðja vin sinn og fyrrverandi samstarfsfélaga. AFP/Jamie McCarthy
Ástralska söngkonan Kylie Minogue geislaði á rauða dreglinum.
Ástralska söngkonan Kylie Minogue geislaði á rauða dreglinum. AFP/Jamie McCarthy
Uma Thurman var glæsileg í öllu hvítu.
Uma Thurman var glæsileg í öllu hvítu. AFP/Jamie McCarthy
Jennifer Lopez stígur aldrei feilspor í klæðnaði.
Jennifer Lopez stígur aldrei feilspor í klæðnaði. AFP/Jamie McCarthy
Kaia Gerber, Rande Gerber og Cindy Crawford voru glæsileg.
Kaia Gerber, Rande Gerber og Cindy Crawford voru glæsileg. AFP/Jamie McCarthy
Keely Shaye Smith og Pierce Brosnan mætti í sínu fínasta …
Keely Shaye Smith og Pierce Brosnan mætti í sínu fínasta pússi. AFP/Jamie McCarthy
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Allt sem menn gjöra hefur sínar afleiðingar og reyndar aðgerðaleysi líka. Með það að leiðarljósi muntu ávinna þér virðingu samstarfsmanna þinna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Nanna Rögnvaldardóttir