Gypsy Rose Blanchard hefur misst hátt í 12 kíló frá því að frumburður hennar og Ken Urker, stúlka sem hlaut nafnið Aurora Raina, kom í heiminn þann 28. desember síðastliðinn.
Blanchard, sem hlaut tíu ára fangelsisdóm fyrir að myrða móður sína árið 2015, sýndi fylgjendum sínum á Instagram þyngdartap sitt á sunnudag og deildi „fyrir og eftir myndum“ af sér þar sem sjá má muninn.
Blanchard losnaði úr fangelsi eftir átta ár á bak við lás og slá síðla desember 2023 og skildi við eiginmann sinn til tveggja ára, Ryan S. Anderson, í apríl í fyrra. Ekki leið á löngu þar til hún sást með fyrrverandi kærasta sínum, Ken Urker.
Parið greindi frá óléttutíðindunum aðeins örfáum mánuðum seinna.
Morðmálið vakti mikla undrun og athygli vestanhafs á sínum tíma og ekki síst fyrir þær sakir að móðir Blanchard var sögð hafa logið upp á dóttur sína og sagt hana þjást af fjölda kvilla, þá meðal annars flogaveiki og hvítblæði.