Bandaríska poppstjarnan Addison Rae gaf í dag út glænýtt tónlistarmyndband sem tekið er upp á Íslandi. Lagið nefnist „Headphones On“.
Addison Rae Easterling, sem skaust á stjörnuhimininn á TikTok en hefur á síðasta ári haslað sér völl í ofurpopp-senunni (eða hyperpop-senunni), kom hingað til landsins í febrúar. Verslaði hún þá m.a. við fatabúðina Wasteland.
Ísland leikur lykilhlutverk í tónlistarmyndbandinu, þar sem poppstjarnan hefur lakkað íslenska fánann á neglurnar sínar.
Easterling sést einnig ríða á íslenskum hesti, auk þess sem hún mannar vakt í Iceland í Breiðholti, dansa fáklædd í svartri fjöru og athafna sig við gráan snjóskafl á bílastæði.
Lagið verður á nýrri plötu poppstjörnunnar sem kemur út þann 6. júní. Hún gaf nýlega út fimm laga smáskífu er nefndist AR. Þá var hún einnig á remix-i á lagi með Charli XCX í fyrra.