Kvikmynd Hlyns á aðaldagskrá í Cannes

Hlynur Pálmason leikstjóri verður með mynd á aðaldagskrá Cannes í …
Hlynur Pálmason leikstjóri verður með mynd á aðaldagskrá Cannes í maí, Ástin sem eftir er. Ljósmynd/Aðsend

Ástin sem eftir er, nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, verður heimsfrumsýnd í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í Frakklandi sem haldin verður dagana 13. til 24. maí.

Frá þessu greinir Kvikmyndamiðstöð Íslands á Facebook-síðu sinni þar sem þess er enn fremur getið að kvikmyndin verði sýnd í Cannes Premiere-flokki hátíðarinnar, fyrst íslenskra kvikmynda.

Hlynur Pálmason, leikstjóri og handritshöfundur, útskrifaðist úr Danska kvikmyndaskólanum í Kaupmannahöfn árið 2013 og var fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd Vetrarbræður (2017) sem er dönsk mynd. Önnur mynd Hlyns, Hvítur, hvítur dagur (2019), átti velgengni að fagna og hlaut fjölda verðlauna og tilnefninga.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Best væri að tryggja að sem minnst fari fyrir hlutunum. Þú ert í ævintýraham og til í slaginn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Jónína Leósdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Best væri að tryggja að sem minnst fari fyrir hlutunum. Þú ert í ævintýraham og til í slaginn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Satu Rämö
3
Sigrún Elíasdóttir
4
Viveca Sten
5
Jónína Leósdóttir